Flakkarar félag húsbílaeigenda – Álfabrekku 1 750 Fáskrúðsfjörður kt. 700192-2109 heimasíða: flakkarar.is netfang: umsjon@husbilar.is
Aðalfundur og sumarkaffi
Flakkara félags húsbílaeigenda.
Ágætu félagar.
Aðalfundur Flakkara félags húsbílaeigenda verður haldinn í Laugaborg Hrafnagili fimmtudaginn 24. Apríl 2025 – sumardaginn fyrsta kl. 14:00.
Dagskrá fundarins skv. 7. grein laga félagsins:
1. Formaður setur fundinn og tilnefnir fundarstjóra og ritara fundarins.
2. Fundarstjóri kannar lögmæti fundarins og kynnir dagskrá hans.
3. Formaður flytur skýrslu stjórnar.
4. Gjaldkeri útskýrir reikninga félagsins.
5. Umræða um skýrslu stjórnar, reikninga félagsins og afgreiðsla.
6. Lagabreytingar ef einhverjar eru.
7. Kosning í stjórn sbr. gr. 4. Kjósa þarf tvo í stjórn.
8. Kosning skoðunarmanns reikninga sbr. gr. 4
9. Kosning ferða- og skemmtinefndar fyrir árið 2026 sbr. gr. 4.
10. Önnur mál.
Að fundi loknum verður svo árlegt sumarkaffi félagsins. Greiða þarf kr. 1,500,kr. fyrir kaffið með peningum – enginn posi á staðnum.
Stjórnin vill taka fram að allar breytingar varðandi félaga svo sem heimilisföng eða símanúmer eða annað sem þarf að leiðrétta í nýju félagatali og heimasíðu þarf að berast til formanns fyrir aðalfund því þá verður félagatalið að vera tilbúin að mestu leyti. Netfangið er gunska@simnet.is eða bara hringja í Gunnar S. í síma 894-4928. Sjáumst svo sem flest á sumardaginn fyrsta og gleðjumst saman yfir komandi ferðasumri. ATH Félagsskírteinið fylgir með Félagatalinu til þeirra sem greitt hafa félagsgjaldið. Stjórnin
Nafnabreyting.
Bl. 7 Í stað Sparnaðarnefnd kemur Fjáröflunarnefnd.
Lagabreytingar
Lagt er til að breyting verði gerð á 12. grein sem fjallar um hvað verður um eignir félagsins þegar félagið verður lagt niður.
í seinni málsgrein 12. greinar stendur: Skulu þá eignir félagsins renna til uppbyggingar á þjónustu við húsbílaeigendur.
Lagt er til að sú grein hljóði þannig: Skulu þá eignir félagsins renna til Sjúkrahússins á Akureyri.
Greinargerð:
Þar sem mér finnst þessi seinni málsgrein ekki lengur eiga við legg ég til að eignirnar verði látnar renna til Heilbrigðisstofnun Norðurlands Akureyri. þar sem við öll megum búast við að þurfa á þjónustu þaðan að halda einhvern tímann á okkar lífsleið.
Kv. Gunnþór E. Sveinbjörnsson.