Ágætu félagar

Aðalfundur Flakkara félags húsbílaeigenda verður haldinn í Laugaborg í Eyjafjarðarsveit fimmtudaginn 21. apríl – sumardaginn fyrsta kl. 14:00.

Dagskrá fundarins skv. 7. grein laga félagsins:

1.    Formaður setur fundinn og tilnefnir fundarstjóra og ritara fundarins.

2.    Fundarstjóri kannar lögmæti fundarins og kynnir dagskrá hans.

3.    Formaður flytur skýrslu stjórnar.

4.    Gjaldkeri fer yfir reikninga félagsins.

5.    Umræða um skýrslu stjórnar, reikninga félagsins og afgreiðsla.

6.    Lagabreytingar ef fram koma.

7.    Kosning stjórnar

8.    Kosning skoðunarmanns reikninga

9.    Kosning uppstillingarnefndar

10. Kosning ferða-  og skemmtinefndar

11. Önnur mál.

Að fundi loknum verður svo árlegt sumarkaffi  félagsins.

Stjórnin vill taka fram að allar breytingar varðandi félaga svo sem heimilisföng eða símanúmer eða annað sem þarf að leiðrétta í nýju félagatali og heimasíðu þarf að berast til formanns fyrir aðalfund því þá verður bókin að vera tilbúin að mestu leyti. Netfangið er umsjon@husbilar.is eða bara hringja í Gunnar í síma 894-4928.

Sjáumst svo sem flest á sumardaginn fyrsta og gleðjumst saman yfir komandi ferðasumri.

Stjórnin

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *