Félagatalið

Daginn félagar, nú fer félagatalið í prentun fyrir helgi svo að ef þið eruð með einhverjar lagfæringar er hver  síðastur að koma þeim til mín.  Kv. Gunnar

Skoðunardagar

Góðan dag, og takk fyrir síðast  minni á 40% afslátt hjá Frumherja dagana 15. apr til 15. júní gegn framvísun félagsskírteinis og 20% afslátt af skoðunarverði á heimilisbílum allt árið. Kv. Gunnar

Ferðaáætlun 2022

Vorferð:10. – 12. júní Hegranes í Skagafirði. Stóra ferðin: 1. – 10. júlí, m/afmælisívafi. 1. – 3. júlí, Tjaldsvæðið Páfagarður Hauganesi. 3. – 6. júlí, Bólstaðarhlíð, Gamla Fjósið og nágrenni. 6. – 8. júlí Ásbyrgi Miðfirði. 8. – 10. júlí Dalabúð Búðardal, lokahóf. Berjaferð 19. – 21. ágúst Ljósvetningabúð. Árshátið 2. – 4. september Ýdalir […]

Aðalfundur og sumarkaffi 2022

Ágætu félagar Aðalfundur Flakkara félags húsbílaeigenda verður haldinn í Laugaborg í Eyjafjarðarsveit fimmtudaginn 21. apríl – sumardaginn fyrsta kl. 14:00. Dagskrá fundarins skv. 7. grein laga félagsins: 1.    Formaður setur fundinn og tilnefnir fundarstjóra og ritara fundarins. 2.    Fundarstjóri kannar lögmæti fundarins og kynnir dagskrá hans. 3.    Formaður flytur skýrslu stjórnar. 4.    Gjaldkeri fer yfir reikninga félagsins. 5.    Umræða um skýrslu […]

Jólakveðja 2020

Jólakveðja 2020 Kæru Flakkarar. Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs. Vonum að nýtt ár verði gott ferðaár. Þetta er búið að vera skrýtið ár hjá okkur öllum, en vonandi lagast allt með hækkandi sól og bóluefni, þannig að við getum ferðast áhyggjulaus. Vonandi verður hægt að halda aðalfund í vor. Kærar […]

Ferðir og fl. 2021

Jæja kæru félagar. Þá er ferðanefndin búin að skipuleggja ferðir sumarsins. En munum að allar ferðir eru settar inn með fyrirvara um að hægt verði að koma saman út af Covid. 22. apríl Aðalfundur og sumarkaffi Laugaborg 21. til 24. maí Vorferð Funaborg Stóraferðin Vesturland 2. til 11. júlí. Hvammstangi ein nótt 2-3 júlí Miðgarður […]